tisa: MR Schemmerr

sunnudagur, febrúar 19, 2006

MR Schemmerr

Það var laugardagskvöld, eða er eiginlega ennþá og ég sko komin djammfílinginn eftir að hafa horft á eurovision með mömmu. Þannig ég hringi í Ásgerði og við skellum okkur út.
En þá föttuðum við að við eigum enga vini þannig við röltum um einar í rigningunni.....
Við grétum líka smá.


Svo var auðvitað MR árshátíð sem við Ásgerður skelltum okkur á, því MS vildi ekkert með okkur hafa, en MS-ingar losnuðu ekki svo létt við okkur því við ákváðum að troðast í MS fyrirpartý. Það var í Skerjafirði sem er langt út á landi, næstum því lengra en Seltjarnarnes og þá er sko mikið sagt. Það var auðvitað crazy-ass stuð í Skerjafirðinum eins og alltaf.
Ég og Ásgerður fórum svo í leigubíl á Gullhamra og var leigubílstjórinn hinn skemmtilegasti maður og stuðpinni hinn mesti og var honum mikið þakkað fyrir farið.

Ballið síðan var hið besta en ég þekki samtals einn í MR, en það var aukaatriði. Ég skemmti mér konunglega alveg svona... já, já.

Hápunktur kvöldsins: Leigubílstjórinn okkar, mælum með honum... Hann er hjá Hreyfli og er svona karl um fertugt. Voða hress náungi á svörtum bíl.


Ég fór fram úr rúminu klukkan hálf sjö um kvöldið í dag, eða í kvöld og hafði sofnað klukkan svona sex kvöldið áður. Mamma hans Magga spurði mig mjög áhyggjufull á svip hvortég væri blóðlítil og hvort ég hefði farið í mælingu. Ég forðaði mér heim.

Bæjóóóó, skillurruuu
(oj)

Tinna - Leti er lífstíll

tisa at 00:47

0 comments